Leiðsögn fyrir myPOS App
Opnaðu myPOS App appið og skráðu þig inn með tölvupóstfanginu og 4 stafa lykilkóðanum sem valinn var þegar appið var sett upp.
Heimaskjárinn sýnir þrjá flýtitakka:
- Senda peninga - leyfir bankafærslur og peningasendingar til annarra myPOS notenda; söluaðilinn getur valið af hvaða bankareikning peningarnir fara
- Virtual Terminal - ef þjónustan hefur verið virkjuð, þá leyfir hún söfnun MO/TO greiðslna og býr til stafræna kvittun. Ef þjónustan er ekki virk er til umsóknareyðublað til að óska eftir virkjun
- Senda greiðslubeiðni - leyfir sendingu greiðslubeiðna í tölvupóstfang eða farsíma
Undir tökkunum er samantekinn listi af reikningsfærslum fyrir rafeyrisreikningana í öllum gjaldmiðlum. Héðan getur söluaðilinn leitað að sérstakri færslu og skoðað upplýsingar um færsluna. Það er einnig möguleiki á að endursenda stafræna kvittun fyrir greiðslur.
Efra vinstra hornið gefur aðgang að myPOS valmyndinni. Eftirfarandi valmöguleikar í valmynd eru í boði:
- Áfylling fyrir farsíma - stimplaðu inn símanúmer og fylltu á inneignina
- Tæki - Skoðaðu öll tæki sem tengd eru við myPOS reikninginn og einnig viðbótarupplýsingar um hvert tæki:
- færslur sem gerðar eru með tækinu - listi yfir færslur með möguleika á að velja hverja færslu eða meiri upplýsingar
- í viðbótarvalmyndinni Upplýsingar - upplýsingar um tækið og eiginleikar, einnig færslugjöld sem tengjast tækinu
- í viðbótarvalmyndinni Stillingar - möguleiki til að læsa eða virkja tækið
- Kort - sjá öll kort sem tengd eru við myPOS reikninginn. Fyrir hvert kort eru viðbótarupplýsingar um:
- færslur sem gerðar eru með kortinu - listi yfir færslur með möguleika á að velja hverja færslu eða meiri upplýsingar
- allar upplýsingar um kortið - sýnilegt með því að smella á kortið
- í viðbótarvalmyndinni Tilkynningar - núverandi tilkynningar fyrir kortið og möguleiki á að breyta þeim
- í viðbótarvalmyndinni Stillingar - möguleikinn á að virkja eða óvirkja kortið og eins að skoða og stilla eyðslumörkin
- Reikningar - lesborð sem sýnir núgildandi stöðu fyrir hvern reikning sem tengdur er við myPOS reikninginn
- Veldu reikning til að skoða upplýsingar hans, stillingar og fjármagnsupplýsingar
- Reikningsfærslur möguleikinn leyfir færslur á milli reikninga
- Virkni - leyfir söluaðilanum að skoða virkni alls myPOS reikningsins. Upplýsingunum er skipt niður í flokka (Greiðslubeiðnir; Tæki; Netviðskipti; Forheimildir og Áfylling) og innan hvers flokks eru síur og leitarmöguleitar
- Tilkynningar - skoðaðu og/eða breyttu núverandi tilkynningum og veldu á milli Push-skilaboða, textaskilaboða eða tilkynninga með tölvupósti
- Stillingar - lykilkóði og lagaðu sjónrænar stillingar
- Um - telur upp viðeigandi lagaskjöl